
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
11.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026
Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Hefur þú áhuga á að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að meðferðaraðila til starfa í fjölskylduteymi 0-5 ára hjá Geðheilsumiðstöð barna.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölskylduteymi 0-5 ára veitir snemmtækan, samþættan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra með það að markmiði að efla tengsl, foreldranæmi og andlega velferð barna og fjölskyldna þeirra. Unnið er út frá tengslamiðaðri nálgun með börn og foreldra/forsjáraðila, með farsæld fjölskyldunnar að leiðarljósi. Meðferðaraðili starfar í þverfaglegu teymi og er fjölskylduvinna einn lykilþátta starfsins. Meðferðaraðili tekur einnig virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
Hæfniskröfur
Löggilt háskólanám af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði skilyrði, t.d. í félagsráðgjöf, fjölskyldufræði, sálfræði, hjúkrun eða sambærilegu námi
Framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð eða sambærilegri tengslamiðaðri meðferð kostur
Reynsla af meðferðarvinnu skilyrði
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu kostur
Reynsla af hópmeðferð eða námskeiðshaldi fyrir foreldra kostur
Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Faglegur metnaður
Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun
Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta
Góð almenn enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Linda Kristmundsdóttir
Forstöðumaður
Tölvupóstur: Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6600
Ásgerður Arna Sófusdóttir
Teymisstjóri
Tölvupóstur: asgerdur.arna.sofusdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6600

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
11.02.2026
Umsóknarfrestur
25.02.2026