Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á göngudeild innkirtla og gigtarsjúkdóma með áherslu á skjólstæðinga með fótasár af völdum sykursýki. Á deildinni eru starfræktar tvær sérgreinar, það eru gigt- og innkirtlalækningar. Auglýst staða sérfræðings í hjúkrun tilheyrir innkirtla hlutanum.

Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk, auk klínískra starfa, er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.

Á göngudeild innkirtlasjúkdóma starfar þverfaglegt teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, næringafræðinga, fótaaðgerðafræðinga, atferlisfræðinga, geislafræðinga, ritara og annars aðstoðarfólks. Á göngudeildina koma sjúklingar í eftirlit, viðtal, mælingar, skoðun, rannsóknir og sárameðferð til fagfólks deildarinnar. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til vaxtar í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.

Ráðið er í starfið 1. apríl 2026 eða skv. nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun hjúkrunar og þjónustu innan sérgreinar

  • Frumkvæði og innleiðing nýrra verkferla

  • Kennsla og fræðsla

  • Ráðgjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks

  • Rannsóknir og gæðastörf

  • Klínísk störf eftir atvikum

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun

  • Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun

  • Starfsreynsla í hjúkrun

  • Leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Reynsla af teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðingur í hjúkrun, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 5/5

Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erna Jóna Sigmundsdóttir

Tölvupóstur: ernajs@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026