Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Ísafirði

Upplýsingar um starf

Starf

Áfanga- og fjarnámsstjóri - 100% staða

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.02.2026

Umsóknarfrestur

27.02.2026

Áfanga- og fjarnámsstjóri - 100% staða

Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í bók-, list-, verk- og starfsnámi og á starfsbraut. Í skólanum er kennt í stað-, dreif- og fjarnámi. Tæplega 50 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru tæplega 600. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarnám. Gildi skólans eru virðing, metnaður og vellíðan.

Á heimasíðu skólans, www.misa.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið sem og gæðahandbók skólans en skólinn hefur fengið ISO-9001 gæðavottun . Skólinn hefur sömuleiðis fengið ÍST 85:2012 jafnlaunavottun. Skólinn hefur undanfarin 3 ár fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarstofnun og árið 2025 lenti skólinn í 3. sæti í flokki meðalstórra stofnana í Stofnun ársins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Áfanga- og fjarnámsstjóri

  • starfar eftir starfslýsingu sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is

  • skipuleggur, stjórnar og hefur faglega umsjón með rekstri áfangakerfis skólans

  • hefur umsjón með fjarnámi innan skólans

  • hefur umsjón með endurskoðun og viðhaldi skólanámskrár með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008.

  • heldur utan um áfangakerfi skólans

  • er hluti af stjórnendateymi skólans

  • tekur þátt í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi

  • vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi, er fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.

Áfanga- og fjarnámsstjóri skal hafa:

  • hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019

  • reynslu af kennslu í framhaldsskóla nauðsynleg, reynsla af fjarkennslu er kostur

  • menntun og/eða reynsla af stjórnun

  • haldgóða þekkingu á áfangakerfi, námskrá og innviðum framhaldsskóla

  • góða ritfærni í íslensku og hæfni til að vinna með gögn og við skýrslugerð

  • faglegan metnað, frumkvæði, skikpulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar

  • samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt

  • reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Ekki er um starf án staðsetningar að ræða.

Umsóknum skulu fylgja ýtarlegar upplýsingar um nám og starfsferil, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfum ásamt stuttu kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum. Ráðið er í starfið frá 1. maí 2026.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Áskilinn er réttur til að nýta umsóknina í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiðrún Tryggvadóttir

skólameistari

Tölvupóstur: heidrun@misa.is

Sími: 450 4400 og 849 8815

Dóróthea Margrét Einarsdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: dorothea@misa.is

Sími: 450 4400

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Ísafirði

Upplýsingar um starf

Starf

Áfanga- og fjarnámsstjóri - 100% staða

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.02.2026

Umsóknarfrestur

27.02.2026