
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.02.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsfólki?
Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Árbæ, Firði, Hamraborg og Miðbæ. Við erum líka að leita að sumarfólki í Heimahjúkrun heilsugæslunnar. Það eru fjölmörg spennandi störf í boði með ráðningartíma frá 6 vikum upp í 3 mánuði.
Passar þú í hópinn?
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Uppgjör í lok dags
Móttaka tímapantana í afgreiðslu
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Flokkun á pósti ásamt skönnun og frágangi gagna
Önnur verkefni falin af yfirmanni
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
Reynsla af skrifstofustarfi kostur
Jákvæðni og rík þjónustulund
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð almenn tölvukunnátta
Reynsla af Sögukerfi er kostur
Lágmarksaldur er 18 ár
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði. Ef óskað er eftir að starfa á ákveðinni heilsugæslustöð þá vinsamlegast takið það fram.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.02.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026