Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri heimahjúkrunar Egilsstöðum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

-70%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Teymisstjóri heimahjúkrunar Egilsstöðum

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða teymisstjóra heimahjúkrunar á Egilsstöðum, um tvær stöður er að ræða og er starfshlutfall 70% með möguleika á viðbótar starfsprósentu á heilsugæslu. Staðan veitist frá 1.maí 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru að skipulegga heimahjúkrun á Egilsstöðum. Viðkomandi yrði faglegur stjórnandi heimahjúkrunar. Starfið krefst mikillar samvinnu við heimaendurhæfingateymi HSA og móttöku- og matsteymi, sem er samvinnuverkefni HSA og Múlaþings í samþættri þjónustu.

Hæfniskröfur

Leitað er að hjúkrunarfræðingi og er a.m.k 6 ára starfsreynsla æskileg og/ eða viðurkennt viðbótarnám eða sérnám á háskólastigi (a.m.k. 40 ECTS einingar). Reynsla af stjórnun æskileg. Lögð er áhersla á metnað í starfi, framúrskarandi samskiptahæfni, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Almenn ökuréttindi eru áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er -70%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðbjörg Björnsdóttir

Tölvupóstur: gudbjorg.bjornsdottir@hsa.is

Jónína Guðrún Óskarsdóttir

Tölvupóstur: jonina.g.oskarsdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri heimahjúkrunar Egilsstöðum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

-70%

Starf skráð

11.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026