Þjónustuaðili
Tryggingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á fjármálasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026
Sérfræðingur á fjármálasviði
Hefur þú áhuga á að starfa í krefjandi fjármálaumhverfi þar sem reynir á góða þekkingu á bókhaldi, innkaupum og öguðum og vönduðum vinnubrögðum? Þá gætir þú átt heima í frábæru starfsmannateymi TR.
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds, afstemning og reikningagerð
Innkaup aðfanga
Tekur þátt í vinnu við umhverfis- og loftslagsmál.
Kemur að þróun og viðhaldi verklagsreglna í gæðahandbók.
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði viðskiptafræði eða hliðstætt próf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun kostur.
Reynsla og/eða þekking af bókhaldi
Góð skipulagshæfni, talnagleggni og nákvæm vinnubrögð
Faglegur metnaður, frumkvæði og jákvætt hugar
Góð kunnátta í íslensku, ensku og upplýsingatækni.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku um hvers vegna sótt er um starfið, rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í fyrri störfum. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Tryggingastofnun er þjónustustofnun almannatrygginga. Hjá TR ríkir góður starfsandi og boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og sveigjanlegan vinnutíma. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um. TR hefur hlotið jafnlaunavottun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu er 36 stundir. Markmiðið með því er að stuðla að betri heilsu og auka möguleika starfsfólks til að samþætta betur vinnu og einkalíf með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á fjármálasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026