
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri stjórnsýslu og rannsókna
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
23.02.2026
Verkefnastjóri stjórnsýslu og rannsókna
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra stjórnsýslu og rannsókna.
Starfið heyrir undir forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfsstöðin er við Háskólann á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með miðlun rannsóknaupplýsinga í IRIS rannsóknargátt (Icelandic Research Information System) við Háskólann á Akureyri.
Umsjón með og stýrir þróun verkferla á notkun IRIS rannsóknargáttar, ráðgjöf til starfsfólks, leiðir teymisvinnu og samstarf innan háskólans, tekur út tölfræði, skýrslugerð ofl.
Reglufylgni fyrir stór og alþjóðlega styrkt rannsóknarverkefni.
Styðja við fræðafólk og fjármálateymi við skýrslugerð og eftirfylgni með stærri rannsóknarstyrkjum.
Ritari doktorsnámsráðs og starfsmaður dómnefnda.
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi er nauðsynlegt og doktorspróf er kostur.
Þekking og áhugi á rannsóknum ásamt reynslu af rannsóknarumhverfi er æskileg.
Þekking og reynsla af umsýslu rannsóknarverkefna og verkefnastjórnun er æskileg.
Reynsla af alþjóðlegum rannsóknarstyrkjum er kostur.
Þekking á opinberri stjórnsýslu og umhverfi háskóla er kostur.
Starfið gerir miklar kröfur til framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar.
Góð færni í íslensku og ensku jafnt töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg og færni í einu skandinavísku tungumáli er kostur.
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir
forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna
Tölvupóstur: gudrunth@unak.is
Sími: 4608650

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri stjórnsýslu og rannsókna
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
23.02.2026