Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.02.2026

Umsóknarfrestur

18.02.2026

Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut

Við sækjumst eftir sjúkraliða sem hefur áhuga á spennandi og fjölbreyttri hjúkrun. Starfshlutfall er 60-100%, eða eftir samkomulagi og er ráðið í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Á dagdeild skurðlækninga er frábær starfsandi og metnaður til að ná árangri. Á deildinni er tekið á móti sjúklingum sem fara í dagaðgerðir ásamt undirbúningi sjúklinga fyrir stærri aðgerðir, s.s. aðgerða á kviðarholi, þvagfærum, hjarta- og brjóstholi og augum. Vaxandi starfsemi er móttaka bráðasjúklinga, frá bráðamóttöku í Fossvogi, öðrum sjúkrahúsum, göngudeildum og að heiman. Einnig sjúklingum sem þurfa á styttri meðferð að halda og geta farið heim samdægurs, t.d. eftir lyfjagjöf, verkjameðferð, ástungur og aftöppun á vökva í kviðarholi.

Opnunartími deildar er frá 07:00 til 20:00 virka daga. Vinnutímaskipulag er dagvinna og unnið er á tvískiptum vöktum. Á deildinni vinnur samheldinn og góður starfshópur. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Undirbúningur legudeildarsjúklinga

  • Móttaka bráðasjúklinga

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og umbótum

  • Stuðla að góðum samstarfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Guðrún Valdimarsdóttir

Tölvupóstur: huldagv@landspitali.is

Sími: 617-4018

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

06.02.2026

Umsóknarfrestur

18.02.2026