
Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir metnaðarfullum forritara í fullt starf á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
20.02.2026
Fiskistofa óskar eftir metnaðarfullum forritara í fullt starf á Akureyri
Vegna aukinna umsvifa leitum við eftir hressum liðsfélaga í góðan hóp forritara hjá Fiskistofu. Ef þú hefur áhuga á nýsmíði og nýjungum í upplýsingatækni þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, þróun og smíði upplýsingatæknikerfa
Framþróun á veflausnum
Þátttaka í ýmsum verkefnum á sviðinu
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu námi
Starfsreynsla við hugbúnaðargerð æskileg
Þekking og reynsla í bakendaþróun (.NET eða sambærilegt)
Þekking og reynsla í framendaforritun (React eða sambærilegt)
Þekking og reynsla af gagnagrunnum og notkun á SQL
Þekking og reynsla af Azure umhverfinu er kostur
Brennandi áhugi á hugbúnaðargerð
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og í rituðu máli er skilyrði
Frumkvæði, drifkraftur og skipulagshæfni
Hæfileiki til að vinna sjálfstætt og í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku sem og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingar.
Við ráðningar í störf hjá Fiskistofu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurjón Friðjónsson
sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs
Tölvupóstur: sigurjon.fridjonsson@fiskistofa.is
Sími: 5697900

Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir metnaðarfullum forritara í fullt starf á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
20.02.2026