Þjónustuaðili
Minjastofnun Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026
Lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands
Minjastofnun Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings
Minjastofnun Íslands starfar á grundvelli laga um menningarminjar nr. 80/2012 og laga um skil menningarverðmæta til annarra landa nr. 57/2011, og er ein undirstofnana umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis. Hún er stjórnsýslustofnun sem fer með umsýslu fornleifa- og húsverndar, þ.m.t. leyfisveitingar til fornleifarannsókna, til breytinga á friðuðum og friðlýstum mannvirkjum og vegna flutnings menningarminja úr landi. Stofnuninni er ætlað að tryggja vernd jarðfastra minja, þ.e. friðaðra og friðlýstra mannvirkja, húsa og fornleifa. Stofnunin fer með umsýslu fornminja- og húsafriðunarsjóða og fornminja- og húsafriðunarnefnda. Minjastofnun er umsagnaraðili og tekur ákvarðanir um jarðfastar menningarminjar sem verða fyrir áhrifum vegna skipulagsmála eða umhverfismats.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst meðal annars í samræmingu verklagsreglna, stefnumótunarvinnu, umsagna vegna lagafrumvarpa, samskipti við ráðuneyti og fleiri, ráðgjöf og yfirlestur á erindum og svörun erinda, skýrslugerð og lagatúlkun auk þátttöku í erlendri samvinnu.
Leitað er að lögfræðingi með reynslu af lögfræðistörfum sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni í síbreytilegu starfsumhverfi.
Hæfniskröfur
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
A.m.k. þriggja ára starfsreynsla af lögfræðistörfum.
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Sveigjanleiki og samstarfshæfni.
Skipulagshæfni.
Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Góð kunnátta í ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kunnátta í norðurlandamáli og hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti er kostur.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er mikilvæg.
Þekking á þeim málaflokkum sem Minjastofnun fæst við er kostur, málefni menningarminja, skipulags- og byggingarmál og umhverfismál.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna ráðningu til 12 mánaða með möguleika á framlengingu.
Með umsókn fylgi ferilskrá og kynningarbréf þar sem tilgreind er ástæða umsóknar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Minjastofnun Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026