Þjónustuaðili
Héraðssaksóknari
Upplýsingar um starf
Starf
Starf sérfræðings á skrifstofu fjármálagreininga lögreglu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026
Starf sérfræðings á skrifstofu fjármálagreininga lögreglu
Skrifstofa fjármálagreininga lögreglu hjá embætti héraðssaksóknara óskar eftir að ráða í starf sérfræðings.
Um verkefni og skipulag héraðssaksóknara er vísað til heimasíðu embættisins; www.hersak.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðgerðagreiningar vegna gruns um hugsanlegt peningaþvætti og/eða fjármögnun hryðjuverka. Greining gagna og gagnaöflun, gerð skýrslna og miðlun upplýsinga.
Samskipti og fræðsla til tilkynningarskyldra aðila, stjórnvalda sem móttaka greiningar frá skrifstofunni og eftir atvikum annarra aðila.
Samskipti við erlenda samstarfsaðila.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið BS/BA háskólagráðu í viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði eða lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins/diplómanámi í lögreglufræðum.
Reynsla við fjármálagreiningar, regluvörslu og/eða störf innan fjármálafyrirtækja, rannsókn fjármuna- og skattalagabrota er kostur.
Þekking á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Mjög góð tölvukunnátta er skilyrði, sérstaklega í excel.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu sem rituðu máli er áskilin.
Brennandi áhugi á greiningum, gagnavinnslu og málefnum peningaþvættis.
Framúrskarandi greiningarhæfni, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi. Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.
Með vísan til 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 18. febrúar nk. Með umsókn skulu fylgja afrit af viðeigandi prófskírteinum og upplýsingar um tvo núverandi eða fyrrverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem veitt geta upplýsingar um störf, samstarfshæfni og aðra hæfni umsækjanda.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Héraðssaksóknari áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Héraðssaksóknari
Upplýsingar um starf
Starf
Starf sérfræðings á skrifstofu fjármálagreininga lögreglu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.02.2026
Umsóknarfrestur
18.02.2026