Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í skurðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sérfræðilæknir í skurðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræðings í almennum skurðlækningum við sjúkrahúsið. Möguleiki er að sækja um hlutastöðu, með ákveðinni viðveru viku og á mánuði upp í 100% starfshlutfall. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Vertu hluti af öflugri heilbrigðisþjónustu á norður- og austurlandi!
Sjúkrahúsið á Akureyri er með sólarhringsvaktþjónustu og tekur á móti fjölþættum vandamálum sem krefjast þverfaglegra úrlausna. Á sjúkrahúsinu er gjörgæsludeild og góð legudeild. SAk er kennslu- og sérgreinasjúkrahús þar sem saman fer þverfagleg teymisvinna og háþróuð heilbrigðisþjónusta þar sem veitt er vönduð og vottuð heilbrigðisþjónusta í metnaðarfullu starfsumhverfi.
Undir skurðlækningar á SAk heyra sérfræðingar í almennum skurðlækningum, æðaskurðlækningum, þvagfæraskurðlækningum, lýtalækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum. Á SAk er sólarhringsvakt-þjónusta og tekið á móti fjölþættum vandamálum sem krefjast þverfaglegra úrlausna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin verkefni starfsins er slysa- og bráðaskurðlækningar, þar með taldar bakvaktir
Á vöktum þarf að sinna slysum og öllum bráðum verkefnum almennra skurðlækninga og leiðbeina auk þess um úrlausn helstu bráðaverkefna þvagfæra-, háls-, nef- og eyrna-, augn-, lýta-, hjarta, heila- og taugaskurðlækninga í samvinnu við ráðgefandi lækna LSH eftir þörfum
Vakthafandi skurðlæknir sinnir einnig ráðgjöf og vinnur úr nýjum tilvísunum
Stofugangur og almenn störf á dagvinnutíma
Framkvæmd almennra skurðaðgerða og smáaðgerða á göngudeild, svo sem aðgerðir vegna gallsteina og kviðslita, botnlanga og bráðaaðgerðir vegna garnastíflu. Auk þess hinar ýmu smáaðgerðir á göngudeild. Sérhæfing í undirsérgrein þvagfæra-, ristil- og endaþarms-, brjósta- eða æðaskurðlækningum er kostur
Sinna aðgerðum einn til tvo hálfa daga á viku og göngudeildarþjónustu einn til tvo hálfa daga á viku
Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta ásamt umbótavinnu
Möguleiki á ákveðnum gæða- og rannsóknarverkefnum í samvinnu við yfirlækni
Önnur verkefni í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
Íslensk sérfræðiviðurkenningu í almennum skurðlækningum auk þess sem undirsérgrein eða víðtæk reynsla af ristil- og endaþarmsskurðlækningum, brjóstaskurðlækningum, efri kviðarhols skurðlækningum eða æðaskurðlækningum er kostur
Umsækjandi skal hafa lokið Advanced Trauma Life Support (ATLS eða European Trauma Course (ETC), Definitive Surgical Trauma Care (DSTC) og/eða Emergency Abdominal Surgery Course (EASC) eða sambærileg námskeið eru kostur
Reynsla af kennslu-, vísinda- og gæðastarfi, ásamt hæfni í þverfaglegri samvinnu og lipurð í mannlegum samskiptum er æskileg
Krafa er gerð um íslensku- eða enskukunnáttu samsvarandi stigi C1 í samevrópska tungumálastaðlinum (CEFRL)
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal skilað rafrænt gegnum tengil á heimasíðu Sjúkrahússins á Akureyri þar sem hlaða skal upp útfylltu umsóknareyðublaði Embættis landlæknis um læknisstöður, ferilskrá, afriti af sérfræðileyfi/-um, staðfestingu á fyrri sérfræðistörfum, og bréfi þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína, gerir grein fyrir sýn sinni á starfið og gefur upp tvo valfrjálsa fyrrum yfirmenn sem heimildarmenn. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í skurðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026