Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026
Lögfræðingur
Útlendingastofnun leitar að kraftmiklum lögfræðingi til starfa við afgreiðslu umsókna hjá stofnuninni. Verksvið lögfræðings er fjölbreytt, t.a.m. afgreiðsla umsókna, samskipti við innlend og erlend stjórnvöld, viðtöl við umsækjendur og önnur tilfallandi verkefni. Lögfræðingur heyrir undir teymisstjóra.
Útlendingastofnun er spennandi vinnustaður á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá stofnuninni starfar um 110 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig vegabréfsáritanir, umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Úrvinnsla umsókna og ritun ákvarðana
Þátttaka í teymisvinnu
Viðtöl við umsækjendur
Samskipti við innlend og erlend stjórnvöld
Þátttaka í gerð og þróun verkferla
Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
Hæfniskröfur
BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Reynsla og þekking á sviði útlendingaréttar og flóttamannaréttar er kostur
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Mjög góð almenn tölvukunnátta
Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Áhugi á stafrænum lausnum og þróun verkferla
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað verður. Í einstaka tilfellum leggur stofnunin einnig verkefni fyrir umsækjendur í ráðningarferlinu.
Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. mars nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi
Vakin er athygli á því að umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir til að framvísa sakavottorði.
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Dómhildur Árnadóttir
Tölvupóstur: domhildur@utl.is
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026