
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur á geislameðferðardeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
17.02.2026
Geislafræðingur á geislameðferðardeild
Landspítali auglýsir starf geislafræðings á geislameðferðardeild laust til umsóknar. Á deildinni fer fram geislameðferð krabbameinssjúklinga og undirbúningur hennar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi en um 1000 sjúklingar fá geislameðferð árlega.
Við leitum að áhugasömum geislafræðingi, reyndum sem nýútskrifuðum, sem sýnir frumkvæði og á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið krefst mikillar samvinnu og þverfaglegs samráðs. Í boði er einstaklingshæfð aðlögun í samstarfi við reynt starfsfólk. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi Starfshlutfall er 60-100% og um dagvinnu er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að undirbúningi geislameðferðar, m.a. við tölvusneiðmyndatæki deildarinnar
Veita geislameðferð
Taka þátt í gæðamælingum á CT tæki og línuhröðlum
Taka þátt í að innleiða nýja tækni og skilgreina verkferla
Önnur sérhæfð verkefni sem heyra undir starfsemi deildarinnar
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi
Faglegur metnaður
Starfsreynsla á sviði geislameðferðar krabbameina er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Geislafræðingur á geislameðferðardeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
17.02.2026