Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Kynningar- og vefstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.02.2026

Umsóknarfrestur

24.02.2026

Kynningar- og vefstjóri

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn óskar eftir að ráða kynningar- og vefstjóra. Í boði er krefjandi og áhugavert starf með fjölbreyttum verkefnum fyrir metnaðarfullan einstakling. Leitað er að skapandi aðila sem hefur ástríðu fyrir almannatengslum og reynslu af fjölbreyttri upplýsingamiðlun.

Starfið felst í að efla ímynd safnsins, auka sýnileika þess og miðla starfseminni á aðgengilegan hátt. Kynningar- og vefstjóri gegnir lykilhlutverki, stýrir almannatengslum og upplýsingamiðlum og ber ábyrgð á vefstjórn og samfélagsmiðlum. Hann hefur umsjón með skipulagi og útliti vefja og samfélagsmiðla.

Kynningar- og vefstjóri heyrir undir landsbókavörð og starfar þvert á svið safnsins í verkefnum sínum. Við bjóðum fjölbreytt og spennandi verkefni, sveigjanlegt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með markaðs- og kynningarmálum, frétta- og greinaskrif

  • Samskipti við fjölmiðla og miðlun upplýsinga varðandi starfsemi safnsins

  • Umsjón með viðburðum á vegum safnsins og samskipti við hagaðila vegna sýninga

  • Umsjón með vefjum safnsins og samfélagsmiðlum þess

  • Ábyrgð á útliti og samræmi vefja og samfélagsmiðla, umsjón með ritstjórum efnisþátta

  • Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð

  • Regluleg úrvinnsla og framsetning gagna

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði markaðsmála, vefstjórnar eða stafrænnar miðlunar er skilyrði

  • Áhugi á varðveislu og miðlun menningararfsins

  • Reynsla af upplýsingamiðlun á stafrænum miðlum

  • Þekking á vefumsjónarkerfum

  • Þekking á myndvinnsluforritum og efnissköpun er æskileg

  • Kunnátta í textagerð, úrvinnslu og framsetningu tölfræðigagna

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Metnaður, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð

  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða fullt starf. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2026. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn | Þjóðarbókhlöðunni | s. 525-5600 | www.landsbokasafn.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Örn Hrafnkelsson

landsbókavörður

Tölvupóstur: orn.hrafnkelsson@landsbokasafn.is

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Kynningar- og vefstjóri

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.02.2026

Umsóknarfrestur

24.02.2026