Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

03.02.2026

Umsóknarfrestur

13.02.2026

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi

Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á bráðaöldrunarlækningadeild B-4 Fossvogi. Deildin er 20 rúma og er meginstarf hennar greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Markvisst er unnið að umbótum í starfi og umhverfi og höfum við lagt áherslu á byltuvarnir, sýkingavarnir og fyrirbyggingu lyfjaatvika.

Á deildinni starfa um 60 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar. Í boði er góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.

Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfshlutfall samkomulag. Æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs hjúkrunarfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og ber ábyrgð á meðferð

  • Veitir fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Áhugi á hjúkrun aldraðra

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólbjörg Sólversd. Vestergaard

Tölvupóstur: solbjorg@landspitali.is

Sími: 824-1204

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

03.02.2026

Umsóknarfrestur

13.02.2026