Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Skjala- og gæðastjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
17.02.2026
Skjala- og gæðastjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands
Þjóðminjasafn Íslands leitar að öflugum einstaklingi í starf skjala- og gæðastjóra Þjóðminjasafnsins.
Starfið krefst áræðni og haldgóðrar reynslu af skjalastjórnun auk hæfni til að móta framtíðarsýn í skjala-, gæða- og bókasafnsmálum, en Þjóðminjasafnið rekur sérfræðibókasafn á starfsstöðvum sínum. Í starfinu felst að halda utanum innleiðingu nýrra lausna og verklags ásamt handleiðslu samstarfsfólks með skilvirkni að leiðarljósi.
Skjala- og gæðastjóri starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfssvið stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.
Skjala og gæðastjóri heyrir undir fjármálastjóra og er aðalstarfsstöðin á Suðurgötu en einnig í Vesturvör Kópavogi og á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði.
Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi, þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á skjalamálum stofnunarinnar, mótun verklags og þróun skjalastefnu til framtíðar
Leiða þróun og umbætur á sviði skala- og gæðamála
Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skalavistun og bætt verklag
Ábyrgð á að farið sé eftir lögum og reglum um skjalavörslu og skylduskil opinberra stofnunar til Þjóðskjalasafns Íslands
Umsjón með sérbókasafni Þjóðminjasafnsins (afgreiðsla, skráning, tímaritahald, skipulag safnkosts)
Ábyrgð á innleiðingu gæðastefnu og stjórnun verklags
Ábyrgð á ritstjórn gæðahandbókar og uppfærslum í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur
Frumkvæði í þróun og innleiðingu nýjunga á verklagi við stafræna þróun skjala- og gæðamála auk sérbókasafns
Hæfniskröfur
Háskólapróf (BA/BS að lágmarki) sem nýtist í starfi er skilyrði
Reynsla í skjalastjórnun innan opinberrar stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála er kostur
Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum, gæðakerfum og gæðastjórnun
Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingarferli og þróun í gæða-, skjala- og upplýsingamálum
Ríkir skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að leiða umbætur
Góð samskipta-og samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi, áræðni og drifkraftur
Færni í íslensku og ensku skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli safnalaga nr. 141/2011, lögum um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011 og lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá safninu tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skulu fylgja yfirlit og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjenda og menntun ásamt kynningarbréfi, á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfs eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtölum og umsagna sem aflað er.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur L Gunnarsson
Fjármálastjóri
Tölvupóstur: gudmundur.l.gunnarsson@thjodminjasafn.is
Sími: 8523010
Ingibjörg Eðvaldsdóttir
Mannauðsstjóri
Tölvupóstur: ingibjorg.edvaldsdottir@thjodminjasafn.is
Sími: 8635511
Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Skjala- og gæðastjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.02.2026
Umsóknarfrestur
17.02.2026