Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti skrifstofustjóra skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026

Embætti skrifstofustjóra skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu

Öflugir framhaldsskólar eru ein megin forsenda fyrir framþróun og farsæld á Íslandi. Í þeim kemst ungt fólk til þroska og þetta eru árin sem geta mótað lífshlaup þeirra og gæfu. Þess vegna skiptir öllu að standa vörð um og efla starfið í framhaldsskólum.

Mennta- og barnamálaráðuneytið ber ábyrgð á framþróun og stefnumótun framhaldsskólanna. Nú leitum við að fyrirliða til að leiða starf nýrrar skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Það er ekki lítil ábyrgð og einstaklega spennandi verkefni!

Skrifstofustjóri framhaldsskóla og framhaldsfræðslu er hluti af stjórnendateymi ráðuneytisins og heyrir beint undir ráðuneytisstjóra. Hér munu gefast ótal tækifæri til að móta og skapa framtíðina í ráðuneyti sem ætlar sér að verða leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun á viðfangsefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skrifstofustjóri ber ábyrgð á að leiða faglegt starf á skrifstofunni og stýra daglegri framkvæmd starfa gagnvart ráðuneytisstjóra, sbr. 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.

Skrifstofa framhaldsskóla og framhaldsfræðslu vinnur í umboði mennta- og barnamálaráðherra að stefnumótun og framgangi stefnumála ráðherra og ríkisstjórnar varðandi málefni skrifstofunnar. Skrifstofan vinnur að undirbúningi, mótun og útfærslu stefnumála eins og þau birtast í sértækum stefnum, lögum, fjármálaáætlunum og fjárlögum. Skrifstofan hefur yfirumsjón með innleiðingu stefnumála og annarra verkefna á málefnasviði hennar í samráði við aðrar skrifstofur og undirstofnanir ráðuneytisins. Þá vinnur skrifstofan að mati, endurskoðun og breytingum á stefnumálum.

Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og stýrir forgangsröðun í samræmi við verklag ráðuneytisins. Skrifstofustjóri leiðir samstarf við aðrar skrifstofur, önnur ráðuneyti, haghafa og aðra innlenda og erlenda aðila. Skrifstofustjóri annast almennan rekstur skrifstofunnar og ber ábyrgð á að árlegt uppgjör sé í samræmi við fjárhagsáætlun. Þá ber hann ábyrgð því að skrifstofan sinni stjórnsýslulegum skyldum sínum og að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd með markvissum og árangursríkum hætti.

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða sem nýtist í starfi er nauðsynleg.

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, farsælli reynslu af breytingastjórnun, stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar er nauðsynleg.

  • Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna með flókin mál á skipulegan og markvissan hátt er nauðsynleg.

  • Víðtæk þekking á starfi og verkefnum framhaldsskóla er nauðsynleg.

  • Þekking á framhaldsfræðslu er kostur.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg. Í því felst m.a. mikilvægi þess að skynja hvert hlutverk ráðuneyta er í lýðræðissamfélagi sem og að búa yfir þeirri pólitísku næmni að hafa skilning á hlutverki ráðuneyta sem skrifstofu ráðherra.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt og verður að endurspegla framúrskarandi hæfni í að tjá sig í ræðu og riti. Norðurlandamál er kostur.

  • Þekking á alþjóðlegum straumum og þróun í menntamálum er æskileg.

Ef þetta á við um þig og þú býrð jafnframt yfir góðri þjónustulund, brennandi metnaði fyrir betri framhaldsskólum með hag nemenda að leiðarljósi þá hvetjum við þig til að sækja um.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn, skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfi umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Með umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Tekið er mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins við ráðningar og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Ragna Kristjánsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: hildur.ragna.kristjansdottir@mrn.is

Þjónustuaðili

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Embætti skrifstofustjóra skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.02.2026

Umsóknarfrestur

23.02.2026