Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi HVE Akranesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

16.02.2026

Umsóknarfrestur

17.03.2026

Iðjuþjálfi HVE Akranesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í 20% stöðu í dagvinnu. Vinnutími eftir nánara samkomulagi.

Viðkomandi starfar á Akranesi, bæði á heilsugæslu og sjúkrahúsinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sinnir heilsueflingu, forvörnum, meðhöndlun, þjálfun, hæfingu og endurhæfingu. Vinnur að því að efla iðju, heilsu og lífsgæði fólks. Metur áhrif umhverfis- og einstaklingsbundinna þátta á færni og samfélagsþátttöku, vinnur að íhlutun og eftirfylgni. Veitir fræðslu, kennslu, ráðgjöf, aðlagar umhverfi, útvegar hjálpartæki og þjálfun. Veitir ráðgjöf til skjólstæðinga, aðstandenda og annarra starfsmanna HVE.

Hæfniskröfur

  • Gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem iðjuþjálfi.

  • Reynsla af störfum við iðjuþjálfun er skilyrði.

  • Góð íslensku og enskukunnátta.

  • Almenn tölvukunnátta.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni, nákvæmni, samskiptafærni og þjónustulund.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Sótt er um starfið á starfatorg.is.

Umsókn fylgi náms og starfsferilskrá og staðfest afrit af íslensku starfsleyfi sem iðjuþjálfi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 20%

Umsóknarfrestur er til og með 17.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elísabet Ósk Jónsdóttir

Tölvupóstur: elisabet.o.jonsdottir@hve.is

Vilborg Lárusdóttir

Tölvupóstur: vilborg.larusdottir@hve.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi HVE Akranesi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

20%

Starf skráð

16.02.2026

Umsóknarfrestur

17.03.2026