
Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Starf við eftirlit á veiðieftirlitssviði á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.01.2026
Umsóknarfrestur
06.02.2026
Starf við eftirlit á veiðieftirlitssviði á Akureyri
Fiskistofa leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga og reynslu af sjávarútvegi. Við leitum að umsækjanda með góða grunnþekkingu á starfsemi sjávarútvegs og vilja til að tileinka sér stafrænar lausnir sem styðja eftirlitsstarfið.
Um Fiskistofu og starfsaðstöðu:Fiskistofa er stjórnsýslu og eftirlitsstofnun sem heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og fer með framkvæmd laga á sviði fiskveiðistjórnunar og lax- og silungsveiða. Starfsstöðvar Fiskistofu eru á Akureyri, Neskaupsstað, Hafnarfirði, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Ísafirði.
Við leggjum ríka áherslu á stafrænar lausnir og nýsköpun, auk greiningar og áhættumats, til að bæta eftirlitsferla okkar og efla skilvirkni. Frekari upplýsingar um vinnustaðinn má nálgast á vefsíðu Fiskistofu www.fiskistofa.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit á sjó: Eftirlitsferðir með skipum af öllum stærðum og gerðum sem leyfi hafa til veiða í efnahagslögsögunni, þar á meðal ein sjóferð á vinnsluskipi á ári. Í eftirlitsferðum á sjó er meðal annars fylgst með brottkasti, framkvæmdar lengdarmælingar á fiski og öðrum sjávarlífverum. Fylgt er eftir skráningu í afladagbók og gerðar tillögur um lokanir veiðisvæða.
Eftirlit í landi: Eftirlit með löndun og vigtun afla á hafnarvog og hjá vigtunarleyfishöfum. Lengdarmælingar og skráning gagna og úttektir á afurðum vinnsluskipa. Notkun fjarstýrðra loftfara.
Skrifstofustörf: Skýrslugerð, greining myndefnis, skráning gagna og vinnsla upplýsinga vegna brotamála.
Önnur verkefni á starfssviði eftirlitsins eru meðal annars verkefni í lax- og silungsveiði í sjó og malartekju í veiðivötnum.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Haldgóð reynsla og þekking á sjávarútvegi.
Reynsla af sjómennsku.
Góð tölvukunnátta.
Góð íslenskukunnátta.
Góð enskukunnátta er kostur.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni í teymisvinnu.
Líkamleg og andleg geta til að sinna fjölbreyttum verkefnum
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Við bjóðum upp á:
Fjölbreytt og áhugavert starfsumhverfi.
Tækifæri til þróunar í starfi og þátttöku í framúrskarandi liðsheild.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Sameykis.
Umsóknarfrestur og ferli:
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir gilda í sex mánuði og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2026 og er um 100% starfshlutfall að ræða.
Athygli umsækjenda er vakin á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Fiskistofa áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þórarinn Sigurður Traustason
Deildarstjóri sjó- og landeftirlits
Tölvupóstur: thorarinn.s.traustason@fiskistofa.is
Sími: 5697900

Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Starf við eftirlit á veiðieftirlitssviði á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.01.2026
Umsóknarfrestur
06.02.2026