
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfskraftur í eldhús HSU á Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
70-90%
Starf skráð
22.01.2026
Umsóknarfrestur
02.02.2026
Starfskraftur í eldhús HSU á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða starfskraft til starfa í eldhús HSU á Selfossi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg matargerð í samræmi við matseðil og gæðakröfur.
Skipulag og undirbúningur í eldhúsi.
Almenn aðstoð í eldhúsi.
Samstarf við annað starfsfólk eldhúss í jákvæðu og faglegu vinnuumhverfi.
Öll almenn eldhússtörf.
Hæfniskröfur
Matartæknir er kostur.
Reynsla af störfum í eldhúsi er kostur
Þekking og reynsla af matseld og næringu er kostur
Góð íslenskukunnátta og enskukunátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Starfið er dagvinna sem er unnin á vöktum og er starfshlutfall 70% til 90 % eða eftir samkomulagi.
Starfið er laust nú þegar og er því upphafsdagur ráðningar samkomulag.
Starfshlutfall er 70-90%
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bjarni Birgisson
Tölvupóstur: bjarni.birgisson@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfskraftur í eldhús HSU á Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
70-90%
Starf skráð
22.01.2026
Umsóknarfrestur
02.02.2026