Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.01.2026
Umsóknarfrestur
10.02.2026
Hjúkrunarfræðingur - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á hjúkrunarheimilið Uppsali Fáskrúðsfirði en um afleysingarstöðu er að ræða með möguleika á fastráðningu. Unnið er á vöktum með bakvaktabyrði. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi og er staðan laus nú þegar.
Hvetjum hjúkrunarfræðinga til að kynna sér þau hlunnindi sem fylgja starfinu, þar á meðal möguleika á húsnæðisaðstoð og flutningsstyrk fyrir aðflutta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf hjúkrunarfræðings á hjúkrunarheimilinu.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karólína Andrésdóttir
Tölvupóstur: karolina.andresdottir@hsa.is
Helga Sturludóttir
Tölvupóstur: helga.sturludottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.01.2026
Umsóknarfrestur
10.02.2026