
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir sérnáms, framhaldsmenntun lækna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026
Yfirlæknir sérnáms, framhaldsmenntun lækna
Starf yfirlæknis sérnáms lækna á Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð.
Um 240 læknar stunda sérnám innan Landspítala sem er skipulagt í samræmi við reglugerð 856/2023. Ýmist er um að ræða fullt nám sem lokið er með formlegum hætti innan Landspítala, eða hlutanám, sem lokið er í öðrum löndum. Yfirlæknir sérnáms ber ábyrgð á framkvæmd sérnáms lækna á Landspítala meðal annars hvað varðar faglegt innihald og gæði. Hann er aðalábyrgðarmaður sérnámsins gagnvart framkvæmdastjóra lækninga, í samræmi við reglugerð nr. 856/2023.
Yfirlæknir er yfirmaður skrifstofu sérnáms og heldur utan um rekstur, mannauð og skipulag. Yfirlæknir er auk þess formaður framhaldsmenntunarráðs.
Yfirlæknirinn er yfirmaður kennslustjóra þeirra sérnámsleiða sem í boði eru innan spítalans og tryggir að innihald marklýsinga og framkvæmd námsins séu í samræmi við viðurkennd innlend og erlend viðmið. Yfirlæknir sérnáms ber ábyrgð á heildarrekstrarkostnaði námsleiðanna í nánu samstarfi við aðra yfirlækna og stjórnendur. Nánar er kveðið á um samvinnu og skiptingu ábyrgðar milli yfirlæknis sérnáms, annarra yfirlækna og stjórnenda í Handbók um mannauðsmál sérnáms á Landspítala og í starfslýsingum.
Leitað er eftir sérfræðilækni með mikla reynslu og hæfni til að veita sérnámi lækna forystu á landsvísu. Viðkomandi tekur einnig þátt í gæða- og umbótastarfi og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Ætlast er til að yfirlæknir starfi eingöngu á spítalanum og taki beinan þátt í kennslu- og vísindastörfum auk stjórnunarhlutverksins og klínískrar þjónustu við sjúklinga.
Gerð er krafa um helgun í starfi innan Landspítala og er starfshlutfall í stjórnunarhlutverkinu 80%. Möguleiki er á allt að 20% starfi innan sérgreinar viðkomandi. Starfið veitist frá 1. mars 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi, framkvæmd og þróun sérnáms lækna á Landspítala og á landsvísu og í samráði við yfirlækna, forstöðumenn og framkvæmdastjóra
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna
Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í lækningum er skilyrði
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
Víðtæk reynsla og þáttaka í kennslu og handleiðslu
Staðgóð þekking á vinnuskipulagi klínískrar vaktþjónustu og utanumhaldi lækna í sérnámi og sýn til framtíðar á þeim sviðum
Hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samvinnu við samstarfsfólk sem stuðlar að sálrænu öryggi á vinnustaðnum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar, auk frumkvæði og metnaðar til að ná árangri
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli. Færni í norðurlandamálum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum.
Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: yfirlæknir, sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir sérnáms, framhaldsmenntun lækna
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
05.02.2026
Umsóknarfrestur
16.02.2026