Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir geislameðferðar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.01.2026

Umsóknarfrestur

17.02.2026

Yfirlæknir geislameðferðar krabbameina

Starf yfirlæknis geislameðferðar krabbameina á hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu Landspítala er laust til umsóknar.

Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs.

Leitað er eftir sérfræðilækni með reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðulækni og framkvæmdastjóra hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu, yfirlækna krabbameinsþjónustu, deildarstjóra geislameðferðardeildar og annað starfsfólk.

Næsti yfirmaður er forstöðulæknir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun geislameðferðar, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni

  • Klínísk vinna sérfræðilæknis

  • Samstarf innan og utan stofnunar með teymisvinnu í þágu sjúklinga að leiðarljósi

  • Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í krabbameinslækningum

  • Breið þekking og reynsla í geislameðferð krabbameina

  • Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum.

  • Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).

  • Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.

  • Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: yfirlæknir, sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 5/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hlíf Steingrímsdóttir

forstöðulæknir

Tölvupóstur: hlifst@landspitali.is

Sími: 824-5286

Vigdís Hallgrímsdóttir

framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: vigdisha@landspitali.is

Sími: 825-3502

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir geislameðferðar krabbameina

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.01.2026

Umsóknarfrestur

17.02.2026