
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026
Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka
Viltu vera hluti af nýstárlegu samstarfi sem mótar framtíð geðheilbrigðismála á Íslandi?
Heilsubrú leitar að metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu og innleiðingu á fyrstu stafrænu lausninni fyrir börn með kvíðavanda á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri fyrir sálfræðing sem vill vinna á spennandi vettvangi þar sem klínísk vinna og nýsköpun mætast.
FLIKK er þróað í öflugu alþjóðlegu samstarfi Háskólans í Reykjavík, tæknifyrirtækisins Bitjam og Háskólans í Oxford og stendur fyrir ForeldraLausn og Internet meðferð fyrir Kvíðna Krakka og er fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Markmið FLIKK er að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að árangursríkri meðferð.
Starfið er innan Heilsubrúar og unnið í nánu samstarfi við rannsóknarteymi FLIKK við Háskólann í Reykjavík, sem leiðir þróun verkefnisins á Íslandi. Staðsetning starfsins er því innan Heilsubrúar með reglulegri viðveru í Háskólanum í Reykjavík.
Heilsubrú er miðlæg eining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem hefur það markmið að efla og samræma þverfaglega þjónustu innan heilsugæslunnar. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita gagnreynda meðferð í gegnum FLIKK.
Þróun og endurmat á verklagi, fræðslu- og meðferðarefni FLIKK.
Þátttaka í klínískum umbótum og innleiðingarvinnu stafrænnar meðferðar.
Eftirfylgni og mat á árangri FLIKK í samvinnu við rannsóknarteymi Háskólans í Reykjavík.
Taka þátt í að kenna, miðla og styðja starfsfólk í notkun nýrra meðferðarleiða með sérstakri áherslu á stafrænar lausnir.
Útbúa fræðsluefni ,leiðbeiningar og þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsfólk í notkun FLIKK
Vera tengiliður í útbreiðslu FLIKK og annarra úrræða innan heilsugæslunnar.
Þátttaka í framþróun FLIKK í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Bitjam og Háskólann í Oxford.
Þátttaka í framþróun og innleiðingu annarra meðferðarúrræða innan Heilsubrúar með áherslu á stafrænar lausnir.
Þverfaglegt samstarf við aðra fagaðila.
Önnur verkefni sem upp gætu komið upp.
Hæfniskröfur
Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur
5 ára starfsreynsla sem sálfræðingur
Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum kostur
Reynsla af handleiðslu kostur
Þekking á gagnreyndum meðferðum
Þekking og reynsla af HAM
Reynsla af rannsóknarvinnu kostur
Áhugi eða reynsla af stafrænum heilbrigðislausnum og þróunarvinnu
Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Alda Ingibergsdóttir
Tölvupóstur: alda.ingibergsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.03.2026
Umsóknarfrestur
18.03.2026