
Þjónustuaðili
Land og skógur
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf hjá Landi og skógi
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.01.2026
Umsóknarfrestur
05.02.2026
Sumarstörf hjá Landi og skógi
Land og skógur óskar eftir starfsfólki í sumarstörf við rannsóknir og vöktun. Um er að ræða fullt starf.
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu hlutverki við að rannsaka og bæta þessar mikilvægu auðlindir Íslands og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra.
Land og skógur sinnir vernd og endurheimt vistkerfa og ræktun skóga og starfar samkvæmt lögum um Land og skóg nr. 66/2023.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða stöður aðstoðarfólks við rannsóknir og vöktun hjá Landi og skógi. Sumarstörfin felast í vinnu við vistfræðirannsóknir stofnunarinnar, m.a. vettvangsvinnu tengdri vöktun á ástandi lands, rannsóknum á þurrlendi, votlendi og skóglendi, sem nýtast bæði til aukinnar þekkingar, bættrar ákvarðanatöku og eru hluti af loftlagsbókhaldi Íslands. Starfinu geta fylgt talsverð ferðalög víða um land þar sem fjarvera frá starfsstöð getur verið löng og samfelld, gert er ráð fyrir mikilli útivinnu og löngum vinnudögum. Starfsstöð sumarstarfsfólks fer eftir þeim verkefnum sem fólk er ráðið í en meðal annars er gert ráð fyrir að ráða fólk með starfsstöð á Norðurlandi, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Hæfniskröfur
Stundvísi, ábyrgð og þjónustulund eru skilyrði.
Bílpróf á beinskiptan bíl er æskilegt. Sömuleiðis er reynsla af akstri við erfiðar aðstæður, þ.e. utan þjóðvegs, á torfærum slóðum, á breyttum bílum o.s.frv. kostur.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið a.m.k. fyrsta ári í háskólanámi á sviði náttúruvísinda eða skyldra greina, bakgrunnur í plöntugreiningum, jarðvegsfræði og skógfræði er kostur.
Hæfni til að vinna í hópi og undir álagi er skilyrði.
Reynsla af útivist er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Störfin eru fjölbreytt og henta öllum kynjum. Upphaf starfs verður í maí/júní eða eftir samkomulagi.
Umsókn skal fylla út rafrænt á starfatorg.is.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf ásamt afriti af prófskírteinum. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Fyrirspurnir um störfin skulu send á sumarstorf@landogskogur.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Marteinsdóttir
Tölvupóstur: sumarstorf@landogskogur.is

Þjónustuaðili
Land og skógur
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf hjá Landi og skógi
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.01.2026
Umsóknarfrestur
05.02.2026