Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2026 - Þvottahús

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.01.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026

Sumarstörf 2026 - Þvottahús

Landspítali auglýsir laus til umsóknar sumarstörf í þvottahúsi. Leitað er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.

Þvottahús Landspítala sér um þvott, afgreiðslu og endurnýjun á öllu líni fyrir spítalann. Þar eru þvegin hundruð tonn árlega, m.a. fatnaður starfsfólks og sjúklinga ásamt lökum, sængum og koddum. Starfsmaður í þvottahúsi heyrir undir teymisstjóra sem er ábyrgur fyrir því að starfsemi þvottahúss gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.

Þvottahús Landspítala er hluti af aðfangaþjónustu Landspítala sem rekur einnig vöruhús, flutningsþjónustu og deildaþjónustu spítalans. Starfsfólk þvottahúss eru um 40 talsins og unnið er í dagvinnu. Þvottahúsið er staðsett í Tunguhálsi, 110 Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Flokkun á óhreinum þvotti og hleðsla á þvottavélar

  • Móttaka á hreinum þvotti og meðhöndlun

  • Afgreiðsla pantana til viðskiptavina

  • Þrif og önnur tilfallandi verkefni í þvottahúsi

Hæfniskröfur

  • Jákvætt og lausnamiðað viðhorf

  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að starfa í teymi

  • Þjónustulund, metnaður og frumkvæði

  • Góðir samskiptahæfileikar

  • Gott vald á íslensku og/ eða ensku

  • Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur var 27.02.26 en hefur verið framlengt til 30.04.26

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, almenn störf, þjónustustörf, þvottahússtörf

Tungumálahæfni: íslenska 3/5, enska 3/5

Tunguháls, 110 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hjörtur Sigvaldason

Tölvupóstur: hjortusi@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstörf 2026 - Þvottahús

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.01.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026