
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í augnlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-60%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026
Sérfræðilæknir í augnlækningum
Við leitum eftir sérfræðilækni í augnlækningum til starfa við augndeild Landspítala. Viðkomandi þarf að hafa íslenskt sérfræðileyfi í augnlækningum. Starfshlutfall er 60% og er starfið laust 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinar, s.s. greiningar, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast undirsérgein sem og almennum augnlækningum
Þátttaka í samráðkvaðningum og göngudeildarþjónustu
Þátttaka í vaktþjónustu sérgreinar bæði á dagvinnutíma og gæsluvöktum
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna í samráði við yfirlækni
Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
Þátttkaka í teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í augnlækningum
Sérfræðipróf í augnlækningum
Reynsla í barnaaugnlækningum, augnkrabbameinslækningum og sjónhimnulæknigum
Reynsla af kennslu- og vísindastörfum er æskileg
Faglegur metnaður og skipulögð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er -60%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í augnlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-60%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
07.04.2026