Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir með lækningaleyfi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.02.2026

Umsóknarfrestur

16.02.2026

Læknir með lækningaleyfi - tímabundið starf

Læknir með lækningaleyfi óskast í starf á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tvö störf tímabundið til sex mánaða frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi, með möguleika á framlengingu.

Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum; bæði í lyflækningum og geislameðferð krabbameina og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði. Einnig er góð samvinna við aðrar starfsstéttir innan starfseminnar.

Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum en einnig þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.

Starfsumhverfið er lærdómsmiðað. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.

Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.

Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í ráðgjöf varðandi meðferð þeirra sem nýlega eru greindir með krabbamein, gerð meðferðaráætlunar og eftirlit með sjúklingum á meðan meðferð stendur

  • Greina og meðhöndla vandamál tengd krabbameinum og lyfja- og geislameðferð

  • Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

  • Þátttaka í kennslu og vísindastarfi

  • Möguleiki á sérhæfðari þjálfun í geislameðferð fyrir áhugasama.

  • Þátttaka í vöktum sérgreinar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs

  • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Áhugi á að bæta þekkingu og færni í starfi

  • Gott vald á íslensku máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Um deildina/starfsemina: Starfið felur í sér göngudeildarvinnu á dag- og göngudeild blóð- krabbameinslækninga 11 B/C, Brjóstamiðstöð og göngudeild geislameðferðar.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, Almennur læknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Áætlað að starfsviðtöl eigi sér stað 25.02.26

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Agnes Smáradóttir

yfirlæknir

Tölvupóstur: agnessma@landspitali.is

Sími: 825 5028

Vaka Ýr Sævarsdóttir

starfandi yfirlæknir geislameðferðar

Tölvupóstur: vakayrs@landspitali.is

Sími: 825 5847

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Læknir með lækningaleyfi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.02.2026

Umsóknarfrestur

16.02.2026