
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 - Lóðaumsjón
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026
Sumarstörf 2026 - Lóðaumsjón
Landspítali auglýsir laus til umsóknar sumarstörf við lóðaumsjón. Við leitum eftir jákvæðu, vinnusömu og ábyrgum einstaklingum sem búa yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika.
Umhverfisþjónusta heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið og rekur allar fasteignir og lóðir Landspítala; samanlagt um 335.000 m2. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa m.a. að almennri umhirðu á lóðum spítalans.
Hér geta einstaklingar sett inn umsókn fyrir sumarafleysingar við almenn störf í lóðaumsjón sumarið 2026. Vinsamlegast takið fram ef þið hafið unnið áður á Landspítala, með því að skrá í reitinn Annað neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn umhirða á lóðum Landspítala í samræmi við umhverfisstefnu spítalans
Gróðursetning og umhirða gróðursvæða
Sjá um að umhverfi og aðstæður utandyra séu til fyrirmyndar
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Rík þjónustulund og jákvæðni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 23.03.26
Með umsókn skal fylgja
Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Staðfesting á hversu mörgum einingum er lokið þegar störf hefjast, ef viðkomandi er í námi.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Athugið að sækja þarf sérstaklega um ótímabundin störf sem auglýst eru á starfatorgi Landspítala.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, almenn störf, þjónustustörf, garðyrkja
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Magnús Már Vilhjálmsson
Tölvupóstur: magnusv@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 - Lóðaumsjón
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2026
Umsóknarfrestur
23.03.2026