Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðalyflækningadeild og/ eða sumarstörf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

01.02.2026

Umsóknarfrestur

27.02.2026

Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðalyflækningadeild og/ eða sumarstörf

Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?

Við leitum eftir 2.-4. árs hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag. Ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Hjúkrunarnemar fá markvissan stuðning samhliða starfi á deildinni.

Bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt og mörg námstækifæri.

Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og markvisst unnið að umbótum og framþróun. Hópurinn er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði.

Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Störfin eru laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnemi á 2.-4. ári

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni

  • Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lyflæknisfræðileg vandamál

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, teymisvinna,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Lúthersdóttir

Tölvupóstur: ingal@landspitali.is

Sími: 893-2306

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarnemar á 2.-4. ári - Hlutastörf með námi á bráðalyflækningadeild og/ eða sumarstörf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

01.02.2026

Umsóknarfrestur

27.02.2026