
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 - Býtibúr
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2026
Umsóknarfrestur
31.03.2026
Sumarstörf 2026 - Býtibúr
Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til starfa í býtibúri á Landspítala sumarið 2026.
Í boði eru störf víða um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Sumarstörf verða ekki auglýst sérstaklega niður á deildir/ þjónustukjarna svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ þjónustukjarna í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón býtibúrs
Ýmis þrif á deild
Aðstoða við máltíðir sjúklinga
Pantanir og frágangur á vörum
Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Stundvísi, sveigjanleiki
Þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
Íslenskukunnátta
Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Með umsókn skal fylgja
Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Staðfesting á stúdentsprófi eða staðfesting á hversu mörgum ECTS einingum er lokið er þegar störf hefjast, ef viðkomandi er í námi.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Athugið að sækja þarf sérstaklega um ótímabundin störf sem auglýst eru á starfatorgi Landspítala.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, þjónustustörf, almenn störf
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Skaftahlíð, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hrönn Harðardóttir
Tölvupóstur: mannaudur@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 - Býtibúr
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.01.2026
Umsóknarfrestur
31.03.2026