
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 í Geðþjónustu - viltu vera á skrá?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.01.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026
Sumarstörf 2026 í Geðþjónustu - viltu vera á skrá?
Viltu starfa sumarið 2026 hjá geðþjónustu Landspítala sem ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi í afleysingum? Hér geturðu skráð inn umsókn. Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar sinna krefjandi störfum við líkamlega og andlega umönnun sjúklinga, m.a. við félagslega þjálfun og eftirfylgd með líðan og virkni og framfylgja meðferðaráætlunum.
Í boði eru fjölbreytt störf á eftirfarandi starfseiningum geðþjónustu:
Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma (Hringbraut)
Bráðalegudeild lyndisraskana (Hringbraut)
Geðgjörgæsla (Hringbraut)
Réttar- og öryggisgeðþjónusta (Kleppur)
Laugarásinn meðferðargeðdeild (Laugarás)
Legudeild geðrofssjúkdóma (Hringbraut)
Legudeild lyndisraskana (Kleppur)
Útkallsteymi yfirsetu (ýmsar deildir Landspítala)
Vinsamlega skráið deildir sem þið helst viljið starfa á í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og fylgigögn sem óskað er eftir séu hengd með. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst.
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti, hvatning, leiðbeining og víðtækur stuðningur
Hvetja sjúklinga til að taka þátt í daglegri virkni, framfylgja meðferðaráætlunum
Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Stuðla að öryggi sjúklinga og samstarfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðþjónustu
Umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deilda
Starfar af heilindum og stuðlar að góðum samstarfsanda
Hæfniskröfur
Áhugi á að starfa með einstaklingum með geðraskanir
Nám sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af umönnunarstörfum er kostur
Mjög góð samstarfshæfni og færni í samskiptum
Jákvætt hugarfar, seigla, metnaður, frumkvæði og skapandi hugsun
Stundvísi og reglusemi
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Með umsókn skal fylgja
Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Ef við á stúdentspróf, önnur prófskírteini og/eða staðfesting á hversu mörgum ECTS einingum er lokið í háskóla.
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal.
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Athugið að sækja þarf sérstaklega um ótímabundin störf sem auglýst eru á starfatorgi Landspítala.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi/stuðningsfulltrúi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5 enska 3/5
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hulda Dóra Styrmisdóttir
Tölvupóstur: huldads@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 í Geðþjónustu - viltu vera á skrá?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
16.01.2026
Umsóknarfrestur
16.03.2026