
Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir að ráða sérfræðing á skrifstofu fiskistofustjóra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.01.2026
Umsóknarfrestur
27.01.2026
Fiskistofa óskar eftir að ráða sérfræðing á skrifstofu fiskistofustjóra
Leitað er að fjölhæfum, metnaðarfullum, sjálfstæðum, drífandi og jákvæðum einstaklingi með fjölbreytta og breiða þekkingu og reynslu.
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun. Starfsumhverfið er metnaðarfullt og er lögð mikil áhersla á að byggja upp trausta liðsheild. Fiskistofa er með starfsstöðvar á Akureyri, Hafnarfirði, Neskaupstað, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Ísafirði.Staðsetning starfsins er á Akureyri.
Fiskistofa leggur áherslu á stafrænar lausnir og sjálfvirknivæðingu sem styður við framtíðarsýn stofnunarinnar. Fiskistofa er traust, skilvirk og framsækin stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun þar sem hagnýting tækni og fagmennska styðja við sjálfbæra nýtingu hafs og vatna. Fyrir frekari upplýsingar um vinnustaðinn er umsækjendum bent á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf sérfræðings á skrifstofu fiskistofustjóra er afar fjölbreytt og felst í aðstoð við verkefni skrifstofunnar sem tengjast fjármálum, gæðamálum og mannauðsmálum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Mjög góð almenn tölvukunnátta.
Góð íslenskukunnátta.
Grunnþekking á fjármálum og mannauðsmálum skilyrði.
Grunnþekking á gæðastjórnun æskileg.
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
Góð enskukunnátta er kostur.
Greiningarfærni og talnagleggni..
Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
Sanngirni og háttvísi.
Mjög góð hæfni í hópastarfi og samskiptum nauðsynleg.
Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingar. Við ráðningar í störf hjá Fiskistofu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Umsóknir gilda í sex mánuði og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli umsækjenda er vakin á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Fiskistofa áskilur sér rétt til að hætta við ráðningu í einstaka stöðu og/eða auglýsa að nýju.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Elín Björg Ragnarsdóttir
Fiskistofustjóri
Tölvupóstur: elin.b.ragnarsdottir@fiskistofa.is
Sími: 5697900

Þjónustuaðili
Fiskistofa
Upplýsingar um starf
Starf
Fiskistofa óskar eftir að ráða sérfræðing á skrifstofu fiskistofustjóra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.01.2026
Umsóknarfrestur
27.01.2026