Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Öldrunarlæknir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
17.02.2026
Umsóknarfrestur
10.03.2026
Öldrunarlæknir
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða lækni sem sinnir öldrunarlækningum þvert á starfsstöðvar stofnunarinnar. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi en möguleiki að að vinna hluta í fjarvinnu. Staðan er laus frá 1. apríl 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að leiða uppbyggingu öldrunarteymis sem starfa myndi þvert á stofnunina og starfa innan þriggja sviða stofnunarinnar (heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið). Þátttaka í þróun og stuðningi hjúkrunarstýrðrar móttöku við öldrunar- og minnissjúkdóma. Ráðgjöf og stuðningur til heimilislækna og sjúkrahúslækna HSA. Læknismóttaka á stofu. Þátttaka í almennum lyflæknisstörfum á sjúkradeild möguleiki en ekki áskilið.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi er skilyrt. Sérfræðileyfi í öldrunarlækningum, sérfræðileyfi í lyflækningum með undirsérgrein í öldrunarlækningum eða sérfræðileyfi í heimilislækningum með viðbótarsérgrein í öldrunarlækningum er skilyrt. Sjálfstæði í starfi, faglegur metnaður, teymis- og árangursmiðuð viðhorf. Reynsla af og vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. Íslenskukunnátta er æskileg. Ökuleyfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eyjólfur Þorkelsson
Tölvupóstur: eyjolfur.thorkelsson@hsa.is
Sigurveig Gísladóttir
Tölvupóstur: sigurveig.gisladottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Öldrunarlæknir
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
17.02.2026
Umsóknarfrestur
10.03.2026