Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2026
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða eða sjúkraliðanema í sumarafleysingar á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn sjúkraliðastörf á hand- og lyflækningadeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Verkefnin eru afar fjölbreytt og því kjörið tækifæri til að ná sér í góða reynslu.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Birgitta Inga J. Hauksdóttir
Tölvupóstur: birgitta.hauksdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2026
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.03.2026
Umsóknarfrestur
27.03.2026