Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60-89%

Starf skráð

05.02.2026

Umsóknarfrestur

16.02.2026

Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum

Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Starfshlutfall er 60-89% og er starfið laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem boðleiðir eru stuttar og tækifæri til að taka virkan þátt í faglegri þróun, gæðastarfi og öflugri teymisvinnu.

Um starfseininguna

Á deildinni starfar samstilltur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu. Fjölbreytt og öflug starfsemi á sviði kvensjúkdómaaðgerða fer fram á skurðstofum flesta daga vikunnar. Veitt er sérhæfð fæðingaþjónusta þar sem konur geta fætt við fullar 37 vikur. Aðgangur er að skurðstofum þar sem svæfingalæknar eru á vakt allan sólarhringinn. Svæfingalæknar HVE eru þjálfaðir í meðferð nýbura og starfa í góðri samvinnu við nýburalækna á Vökudeild Landspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fæðingaþjónusta og mæðravernd

  • Göngudeildarþjónusta

  • Skurðaðgerðir

  • Vaktþjónusta á fæðinga- og kvensjúkdómadeild

  • Þátttaka í gæðastarfi og faglegri þróun

  • Þáttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun sérnámslækna og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni

Hæfniskröfur

  • Sérfræðiviðurkenning í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum og gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis

  • Bakvaktarfærni

  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður

  • Jákvæðni, lipurð og áreiðanleiki í starfi

  • Æskilegt að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu

  • Réttur áskilinn til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsækjendur sækja um á starfatorg.is

  • Nauðsynleg fylgiskjöl:

    • Ítarleg náms- og starfsferilskrá

    • Staðfest gögn um menntun, læknisstörf og vísindavinnu

    • Afrit af opinberu starfsleyfi

    • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfi

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum.

Starfshlutfall er 60-89%

Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrund Þórhallsdóttir

Yfirlæknir

Tölvupóstur: hrund.thorhallsdottir@hve.is

Sími: 432-1000

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60-89%

Starf skráð

05.02.2026

Umsóknarfrestur

16.02.2026