
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í alþjóðlegum menntunarfræðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.02.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026
Lektor í alþjóðlegum menntunarfræðum
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í alþjóðlegum menntunarfræðum við Deild menntunar og margbreytileika við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Starfsskyldur lektorsins eru kennsla og rannsóknir á sviði menntunarfræða með áherslu á margbreytileika á breiðum grundvelli og í samstarfi við starfsfólk annarra deilda Menntavísindasviðs. Auk þess tekur lektorinn þátt í stjórnun innan deildar. Námið er kennt á ensku, fer fram í staðnámi og koma flestir nemendur frá löndum utan Íslands.
Lögð er áhersla á að lektorinn hafi sérþekkingu og skýra framtíðarsýn á einhverjum eftirtalinna sviða þegar kemur að kennslu og rannsóknum: gagnrýnin menntunarfræði, alþjóðleg og samanburðarmenntunarfræði, menntun til sjálfbærrar þróunar, félagslegt réttlæti í menntun, heimspeki og félagsfræði menntunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla á grunn- og meistarastigi í alþjóðlegu námi í menntunarfræðum
Leiðsögn lokaverkefna grunn- og framhaldsnema
Rannsóknir á fræðasviðinu
Stjórnun innan deildar sem m.a. felur í sér þátttöku í nefndarstörfum og deildarfundum
Samstarf á sviði alþjóðlegra menntunarfræða, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi
Hæfniskröfur
Doktorspróf í menntunarfræðum, heimspeki menntunar, félagsfræði menntunar eða öðrum greinum menntavísinda en með skýra alþjóðlega tengingu
Rannsóknavirkni á sviði menntunarfræði, sem kemur m.a. fram í fjölda birtinga á ritrýndum vettvangi
Reynsla af háskólakennslu í fjölbreyttu námsumhverfi er kostur
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli
Íslenskukunnátta
Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar, deildar og sviðsins í heild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að ráðið verði starfið frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor í alþjóðlegum menntunarfræðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.02.2026
Umsóknarfrestur
19.03.2026