
Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Smiður á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2026
Umsóknarfrestur
19.01.2026
Smiður á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.
Þjóðleikhúsið leitar að reynslumiklum smiði með áhuga á starfsemi leikhúsa. Starfið felur í sér smíði leikmynda ásamt öflugu teymi á smíðaverkstæði leikhússins.
Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Smíði leikmynda
Vinna að útfærslu við smíði leikmynda, efnisval og vinnsluaðferðir í samvinnu við yfirsmið smíðaverkstæðis og teymisstjóra leikmyndaframleiðslu
Taka við samþykktum teikningum og bera ábyrgð á framleiðslu/smíði á ákveðnum verkþáttum
Halda tímaáætlanir við smíði leikmynda
Stuðla að því að efni og aðföng séu vel nýtt
Þátttaka í fyrstu uppsetningu leikmynda á sviði
Leggja sig fram við að kolefnisfótspor við framleiðslu leikmynda sé haldið í lágmarki og sé í samræmi við umhverfisstefnu leikhússins
Tryggja að öryggi, frágangur og umgengni á smíðaverkstæði sé til fyrirmyndar
Hæfniskröfur
Mikil reynsla af hverskyns smíðavinnu
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi í leikhúsi og smíði leikmynda er kostur
Reynsla af málmsmíði og suðu er kostur
Þekking á ólíkum smíðaefnum
Hæfni til að meta tímalengd á verkþáttum
Hæfni til að vinna vel í fjölbreyttu teymi og ganga vasklega til verks
Góð almenn tölvukunnátta: Outlook, Excel, Word.
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og áræðni ásamt hæfni í mannlegum samskiptum
Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Vinnutími er á dagvinnutíma alla virka daga en gert ráð fyrir sveigjanlegum vinnutíma þegar leikmyndir fara á svið og við fyrstu skiptingar hverrar leikmyndar á sviði
Næsti yfirmaður er teymisstjóri leikmyndaframleiðslu
Við ráðningu í störf í Þjóðleikhúsinu er tekið mið af jafnréttisáætlun leikhússins
Upphaf starfs er umsemjanlegt en æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum
Leikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan uppfylli enginn umsækjandi kröfur.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Smiður á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.01.2026
Umsóknarfrestur
19.01.2026