Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður í eldhúsi - Sundabúð - Vopnafjörður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
20-60%
Starf skráð
22.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026
Aðstoðarmaður í eldhúsi - Sundabúð - Vopnafjörður
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í tvö störf, aðstoðarmann í mötuneytiseldhús HSA á Hjúkrunarheimilinu Sundabúð. Unnið er á virkum dögum og aðra hverja helgi í dagvinnu. Athugið að einnig er unnið á rauðum dögum. Starfshlutfall er skv. samkomulagi. Framtíðarstarf og staðan veitist frá 1.mars eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt störf í eldhúsi Sundabúðar.
Hæfniskröfur
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af matseld og geti unnið sjálfstætt. Þekking á réttri meðhöndlun matvæla og hreinlæti er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 20-60%
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Íris Grímsdóttir
Tölvupóstur: iris.grimsdottir@hsa.is
Berglind Steindórsdóttir
Tölvupóstur: berglind.steindorsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmaður í eldhúsi - Sundabúð - Vopnafjörður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
20-60%
Starf skráð
22.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026