Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri í meinafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.12.2025

Umsóknarfrestur

15.01.2026

Deildarstjóri í meinafræði

Klínísk blóðbanka- og rannsóknaþjónusta leitar eftir framsæknum og kraftmiklum stjórnanda með framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni og sem hefur góða þekkingu á vinnuferlum í meinafræði. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu á sviði gæðamála. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfni. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.

Við sækjumst eftir einstaklingi með hæfni til að leiða þverfaglega teymisvinnu, er hvetjandi og stuðlar að jákvæðum starfsanda. Deildarstjóri meinafræði stýrir daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni í meinafræði. Deildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðumann, framkvæmdastjóra, og aðra stjórnendur erfða- og sameindalæknisfræði og meinafræði.

Stefnt er að innleiðingu faggildingar skv ISO15198 á þjónusturannsóknum í meinafræði og lögð er mikil áhersla á uppbyggingu og styrkingu gæðakerfis.

Starfshlutfall er 100%, sem unnið er í dagvinnu. Starfið veitist frá 1. febrúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulag og þróun starfsemi. Setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni. Stuðlar að þekkingaþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa.

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni.

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar.

  • Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun þjónustu í erfða og sameindalæknisfræði og meinafræði í samráði við aðra stjórnendur deildarinnar, forstöðumann og framkvæmdastjóra

  • Þátttaka í umbóta, vísinda- og rannsóknarstarfi

  • Starfar náið með öðrum stjórnendum innan sviðsins og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu sem nýtist í starfi

  • Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er æskileg

  • Starfsreynsla í meinafræði

  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur

  • Leiðtogahæfni, áhugi, vilji og reynsla af því að leiða breytingar og umbætur

  • Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðuð nálgun

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun meinafræðiþjónustu og gæða- og öryggismál

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi

  • Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Stjórnunarstörf, rekstur, deildarstjóri, meinafræði, heilbrigðisvísindi

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Borghildur F. Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: borgfk@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri í meinafræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.12.2025

Umsóknarfrestur

15.01.2026