Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

30-90%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

12.01.2026

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar að sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir, starfshlutfall er 30-90% eða samkvæmt samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sjúkraliða í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu. Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Starfið gerir kröfu um góða íslenskukunnáttu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Reynsla af heimahjúkrun æskileg

  • Góð samskipta- og skipulagshæfni

  • Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun

  • Sjálfstæði í starfi

  • Gilt ökuleyfi

  • Hreint sakavottorð

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð enskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Samgöngustyrkur

  • Heilsustyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 30-90%

Umsóknarfrestur er til og með 12.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir

Tölvupóstur: hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6900

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

30-90%

Starf skráð

19.12.2025

Umsóknarfrestur

12.01.2026