Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Financial controller - Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
07.01.2026
Financial controller - Sérfræðingur í fjármálum
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) leitar að metnaðarfullum og gagnadrifnum einstaklingi með umfangsmikla þekkingu á uppgjörum í starf leiðandi sérfræðings á sviði fjármála og eignastýringar.
FSRE rekur eitt af stærstu fasteignafélögum landsins auk þess að bera ábyrgð á og stýra uppbyggingu innviða og aðstöðu fyrir ríkisaðila. Fjárhagslegt umfang nemur um 30 milljörðum á ári og skiptist í þrjár einingar; bókhalds- og uppgjörsþjónusta framkvæmdaverkefna, innheimta leigu og rekstur eigna auk reksturs FSRE.
Um er að ræða leiðandi hlutverk í krefjandi umhverfi sem krefst mikilla samskipta við starfsfólk, viðskiptavini og birgja. Í því felst tækifæri til að þróa áfram umbótaverkefni og sjálfvirknivæðingu ferla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og framkvæmd innra eftirlits
Skýrslugerð fyrir innri og ytri hagsmunaaðila
Undirbúningur fjárhagsuppgjöra í samvinnu með fjármálastjóra
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði fjármála, reikningshalds eða skyldum greinum. Framhaldsmenntun er kostur.
Reynsla af uppgjörsvinnu og fjármálastjórnun er skilyrði.
Þekking á lögum um opinber fjármál, innra eftirliti og reikningsskilastöðlum.
Hæfni í greiningu fjárhagsupplýsinga og framsetningu gagna.
Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
Mjög góð tölvufærni, reynsla í skýrslugerð í PowerBi er mikill kostur.
Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf sem heyrir beint undir fjármálastjóra.
Umsókn óskast fyllt út á Starfatorgi. Öllum umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019, um auglýsingar lausra starfa.
Um FSRE
Hjá FSRE starfa rúmlega 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaþróunar, framkvæmda og rekstrar. Við erum spennandi vinnustaður á fleygiferð inn í framtíðina, bjóðum upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Við leggjum áherslu á að styðja starfsfólk okkar í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet. Við brennum fyrir jafnrétti, frábærri vinnustaðamenningu og fjölskylduvænum vinnustað.
FSRE er sjálfstæð stofnun sem ber ábyrgð á skipulagningu, þróun, nýtingu og rekstri fasteigna í eigu íslenska ríkisins. Hlutverk FSRE er að stuðla að hagkvæmri, vistvænni og ábyrgri meðferð eigna í þágu opinberrar starfsemi og samfélagsins í heild.
Ríkiseignir er stofnun í umsjón FSRE. Stofnunin annast daglegan rekstur, viðhald og þjónustu við fasteignir ríkisins og tryggja að húsnæði ríkisaðila sé í samræmi við þarfir og kröfur. Fasteignasafnið í umsjón Ríkiseigna er eitt af stærstu fasteignasöfnum landsins með um 530 þúsund fermetrum húsnæðis. Stofnunin leigir þar að auki um 100 þúsund fermetra húsnæðis á almennum markaði til framleigu fyrir stofnanir og ráðuneyti.
Jarðasjóður, sem einnig er hluti af FSRE, heldur utan um eignarhald og umsýslu á um 380 jörðum og jarðeignum ríkisins með það að markmiði að nýta land og auðlindir á ábyrgan og sjálfbæran hátt.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Stephanie Nindel
Tölvupóstur: stefania.nindel@fsre.is
Hermann Hermannsson
Tölvupóstur: hermann.hermannsson@fsre.is
Þjónustuaðili
FSRE
Upplýsingar um starf
Starf
Financial controller - Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
07.01.2026