Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 á fæðingadeild - Ljósmæður/ljósmæðranemar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2025
Umsóknarfrestur
02.02.2026
Sumarstörf 2026 á fæðingadeild - Ljósmæður/ljósmæðranemar/hjúkrunarfræðinemar
Langar þig að nýta þekkingu þína og hæfileika og vinna í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi?
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir ljósmæðrum/ljósmæðranemum í sumarafleysingu á fæðingadeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Hvað gerir starfið spennandi:
Reynsla sem skiptir máli
Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi
Teymisvinna
Fagleg þróun
Vaktavinna
Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu, þá er þetta sumarstarf fyrir þig!
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum ljósmæðra samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Ljósmóðir skal hafa fullgilt próf og íslenskt starfsleyfi, annað gildir um nema (gildir ekki ef nemi)
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf 2026 á fæðingadeild - Ljósmæður/ljósmæðranemar/hjúkrunarfræðinemar
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
18.12.2025
Umsóknarfrestur
02.02.2026