
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri skjalavinnslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
08.01.2026
Verkefnastjóri skjalavinnslu
Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í stöðu verkefnastjóra skjalavinnslu hjá stofnuninni. Starfið er ótímabundið og heyrir undir framkvæmdastjóra gæðasviðs. Starfsstöð er Borgartún 21, 105 Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og umsjón með skráningu og skjalamálum.
Innleiðing verkferla í skráningu og skjalamálum.
Viðhald og innleiðing skjalastefnu þvert á stofnunina.
Samskipti við tæknilega þjónustuaðila ásamt þjónustu við starfsfólk.
Fræðsla til starfsfólks um skjölun og tæknimál.
Aðstoða starfsfólk við notkun Gopro, O365 o.fl.
Aðstoð við símsvörun.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða haldbær reynsla.
Reynsla af sambærilegu starfi æskileg.
Mjög góð almenn tölvukunnátta.
Reynsla af O365 og GoPro æskileg.
Nákvæm vinnubrögð.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Þjónustulund og sveigjanleiki.
Frumkvæði og skipulagshæfni.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Þorleifsdóttir
framkvæmdastjóri gæðasviðs
Tölvupóstur: gudrun.thorleifsdottir@bofs.is
Sími: 5302600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri skjalavinnslu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
08.01.2026