Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi HSN Sauðárkróki

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

09.01.2026

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi HSN Sauðárkróki

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan hjúkrunarfræðing/hjúkrunarnema til starfa. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til starfsþróunar í hlýlegu og uppbyggilegu umhverfi. Ráðningartími og starfshlutfall er skv. samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar öflugur hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á vellíðan á vinnustað, teymisvinnu og tækifæri til vaxta og starfsþróunar.

Sauðárkrókur er blómlegt og fjölskylduvænt samfélag. Leik-, grunn- og framhaldsskóli er á svæðinu ásamt allri helstu þjónustu. Íþrótta- og menningarlíf er sterkt og fjölbreytt tækifæri er til útivistar og náttúrupplifana.

Húsnæðisaðstoð er í boði ef þess er óskað.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn hjúkrun og umönnun

  • Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð

  • þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild

  • Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar

  • Önnur tilfallandi verkefni skv. beiðni stjórnanda og skv. lögum og reglugerðum

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi / staðfesting á námi fyrir nema

  • Reynsla er kostur en ekki skilyrði

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

  • Faglegur metnaður og lausnamiðun

  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini. Fyrir nema skal fylgja staðfesting á námi. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4220

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur/hjúkrunarnemi HSN Sauðárkróki

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

09.01.2026