Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis í Fjallabyggð og Dalvík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

07.01.2026

Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis í Fjallabyggð og Dalvík

Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir að ráða metnaðarfullan og árangursdrifinn yfirhjúkrunarfræðing til að leiða faglegt starf á starfsstöðvum okkar í Fjallabyggð og Dalvík.

Um er að ræða 100%, ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.

Þann 1. september sameinaðist heilsugæslan á Dalvík við Heilbrigðisstofnun í Fjallabyggð. Auk heilsugæslustöðva er rekin hjúkrunar- og sjúkradeild í Fjallabyggð og 1. apríl nk. mun hjúkrunarheimilið Hornbrekka verða hluti af starfseiningunni.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling með leiðtogahæfni sem vill taka virkan þátt í mótun og þróun á heilbrigðisþjónustu, stuðla að gæðum og öryggi í þjónustu og skapa jákvætt og faglegt starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg forysta og stjórnunarleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu og annarri stoðstarfsemi samkvæmt skipuriti

  • Fjárhagsábyrgð og rekstur

  • Þátttaka í klínísku starfi

  • Staðarumsjón samkvæmt skipuriti

  • Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun og nýsköpun og stjórnun verkefna þvert á stofnun og á sínu sviði/einingu

  • Stuðlar að öryggi og gæðum þjónustu og tekur þátt í uppbyggingu gæðahandbókar

  • Stjórnun mannauðs, stuðlar að góðri liðsheild og öflugri vinnustaðarmenningu

  • Stuðlar að góðu samstarfi við aðrar stofnanir og hagsmunaaðila

  • Hefur umsjón með starfsemi starfstöðvarinnar samkvæmt skipuriti ásamt yfirlækni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt fullgilt hjúkrunarpróf og starfsleyfi skilyrði, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Haldbær reynsla sem nýtist í starfi

  • Leiðtogahæfileikar s.s. færni til að virkja og leiða starfsfólk til góðra verka

  • Farsæl stjórnunarreynsla og framúrskarandi samskiptafærni

  • Áreiðanleiki og helgun í starfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð nálgun

  • Góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Ökuleyfi, gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands sinnir heilsugæsluþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 200 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 750 talsins.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðný Friðriksdóttir

Tölvupóstur: gudny.fridriksdottir@hsn.is

Sími: 860 7750

Hildur Ösp Gylfadóttir

Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is

Sími: 432 4050

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirhjúkrunarfræðingur svæðis í Fjallabyggð og Dalvík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.12.2025

Umsóknarfrestur

07.01.2026