
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði og sjúkraliðanemi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
30-90%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026
Sjúkraliði og sjúkraliðanemi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliðanema í heimahjúkrun. Um er að ræða 30-90% stöðu og er ráðningartími skv. samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við heimahjúkrun starfar samheldinn hópur sem leggur mikinn metnað í að þjónusta einstaklinga á öllum æviskeiðum þeirra. Heimahjúkrun leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður og mæta starfsfólki sínu með sveigjanleika.
Um er að ræða gefandi starf í frábæru teymi þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu og vellíðan í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vitjanir í heimahús
Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra
Vinna í teymum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Fullgilt sjúkraliðapróf eða staðfesting á námi fyrir nema
Bílpróf er skilyrði
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi í heimahjúkrun
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu
Góð íslenskukunnátta
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Vammleysi s.s gott orðspor og að athafnir í vinnu og einkalífi samræmist þeim siðferðislegu kröfum sem gerðar eru til starfsins
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni viðkomandi til að sinna starfinu. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskríteini. Fyrir nema skal fylgja staðfesting á námi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 30-90%
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði og sjúkraliðanemi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
30-90%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
05.01.2026