Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Lyflæknir - Sjúkradeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026
Lyflæknir - Sjúkradeild
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er með lausa stöðu sérfræðilæknis í lyflækningum.
Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Mikil uppbygging er á HSS og innleiðing á stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Störfin felast í almennum lyflæknisstörfum á sjúkradeild auk göngudeildarþjónustu. Lyflæknar munu einnig vera heimahjúkrun innan handar með ráðgjöf og önnur verkefni. Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta ásamt umbótavinnu.
Læknar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum lækna og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Sérfræðileyfi á Íslandi í almennum lyflækningum
Sérfræðileyfi í undirgrein er kostur
Reynsla af sambærilegum störfum er mikill kostur
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð færni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði. Starfshlutfall er samkomulag auk bakvakta.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 09.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Lyflæknir - Sjúkradeild
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
17.12.2025
Umsóknarfrestur
09.01.2026