
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri í móttöku Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
29.12.2025
Verkefnisstjóri í móttöku Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Laust er til umsóknar 80% starf verkefnisstjóra á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands.
Skrifstofan er til húsa í Eirbergi við Eiríksgötu 34 og er opin alla virka daga frá kl. 8:00-15:00. Þar er veitt margvísleg þjónusta vegna náms og kennslu í deildinni.
Leitað er að þjónustulunduðum, skipulögðum og jákvæðum einstaklingi til að vera í móttöku deildarinnar og sinna auk þess ýmsum stoðþjónustuverkefnum í tengslum við nám og kennslu í deildinni, m.a. tæknistuddri kennslu í HermÍs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn afgreiðsla erinda, símsvörun, tölvupóstur og beiðnir sem berast í beiðnakerfi
Aðstoð við tæknimál í kennslustofum og fundarherbergjum, t.d. tengja tölvur, skjái, hljóðkerfi og annan búnað sem notaður er í kennslu og á fjarfundum
Bókun kennslustofa og fundarherbergja í bókunarkerfi
Ýmis önnur verkefni, t.d. að panta og sækja rekstrarvörur, undirbúningur fyrir viðburði og vera tengiliður við miðlægar einingar HÍ vegna tölvuþjónustu og almenns aðbúnaðar í kennslu og fundarherbergjum
Hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegum verkefnum
Færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og rík þjónustulund
Haldbær tölvukunnátta og færni í lausn einfaldra tæknivandamála, m.a. tengdum kennslubúnaði, fjarfundabúnaði og sérhæfðri kennslu
Vilji og hæfni til að tileinka sér lausnir í upplýsingatækni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af störfum í háskólaumhverfi er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti tekið til starfa sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Í stefnu Háskóla Íslands - HÍ26 - er áhersla lögð á skólann sem góðan vinnustað, að starfsumhverfi sé hvetjandi með vellíðan nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að laða að metnaðarfullt starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn. Tekin hefur verið upp 36 stunda vinnuvika meðal starfsfólks í stoðþjónustu skólans.
Í tengslum við byggingu nýs húss Heilbrigðisvísindasviðs sem áætlað er að verði tilbúið á árunum 2026-2028 er fyrirhuguð endurskipulagning á stoðþjónustu Heilbrigðisvísindasviðs og því gætu verkefni í umræddu starfi tekið breytingum í takt við þær áherslur.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum, ef við á
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 29.12.2025
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnisstjóri í móttöku Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
19.12.2025
Umsóknarfrestur
29.12.2025